Opinn fyrir því að snúa aftur til Englands

David de Gea.
David de Gea. AFP/Oli Scarff

David de Gea er opinn fyrir því að ganga til liðs við Newcastle í ensku úrvaldeildinni í knattspyrnu.

Það er breski miðillinn Telegraph sem greinir frá þessu en de Gea, sem er 33 ára gamall, er án félags eftir að samningur hans við Manchester United rann út síðasta sumar.

Nick Pope, markvörður Newcastle, fór úr axlarlið um síðustu helgi í leiknum gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni og verður að öllum líkindum frá keppni út tímabilið.

Newcastle er því í leit að markverði en de Gea lék með United á ár­un­um 2011 til 2023 og á að baki 545 leiki fyr­ir fé­lagið í öll­um keppn­um, þar af 415 í ensku úr­vals­deild­inni þar sem hann hélt marki sínu hreinu í 148 skipti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert