Portúgalski knattspyrnumaðurinn Joao Palhinha hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína með Fulham frá því að gekk til liðs við liðið frá Sporting í fyrrasumar.
Hann var við það að ganga til liðs við Bayern München í sumar en félagaskiptin hrundu á síðustu stundu.
Arsenal og Liverpool eru á eftir miðjumanninum en bæði vilja þau styrkja liðin sín í janúarglugganum fyrir titilbaráttuna.