Jaap Stam, fyrrverandi varnarmaður enska knattspyrnufélagsins Manchester United, hefur bæst í hóp gagnrýnenda brasilíska sóknarmannsins Antony.
Stam, sem er 51 árs gamall, lék með United frá 1998 til 2001 og varð þrívegis Englandsmeistari með liðinu, einu sinni Evrópumeistari og einu sinni bikarmeistari.
Miðvörðurinn fyrrverandi snéri sér að þjálfun árið 2009 eftir að hafa lagt skóna á hilluna árið 2007 en hann er án starfs í dag eftir að hafa þjálfað lið á borð við Reading og Feyenoord.
„Miðað við það sem ég hef séð frá Antony þá er hann ekki nógu góður til þess að spila fyrir félag af þeirri stærðargráðu sem Manchester United er,“ sagði Stam í hlaðvarpsþættinum Stick to Football.
„Hjá Manchester United þarftu leikmenn sem geta staðið sig vel, líka þegar á móti blæs. Mér finnst hann ekki nálægt þeim stað og mér finnst hann ekki hafa tekið neinum framförum hjá félaginu.
Hann var ágætur í Hollandi en hann var langt frá því að vera á meðal bestu leikmanna deildarinnar. Hann var í besta liði landsins og var mikið með boltann, það var öðruvísi en hjá United. Upphæðin sem United borgaði fyrir hann líka kom mér mikið á óvart,“ bætti Stam við.