Darwin Núnez skoraði glæsilegt mark fyrir Liverpool þegar liðið lagði Brentford örugglega að velli, 4:1, á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Núnez braut ísinn með laglegri vippu eftir góðan undirbúning Diogo Jota.
Alexis Mac Allister tvöfaldaði forystuna eftir undirbúning Mohamed Salah og Salah komst svo sjálfur á blað eftir skallasendingu Cody Gakpo.
Ivan Toney minnkaði muninn af harðfylgi áður en Cody Gakpo innsiglaði sigur Liverpool eftir sendingu frá Luis Díaz.
Mörkin fimm úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.