Manchester United hafði betur gegn Luton, 2:1, í 25. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla á Kenilworth Road í Luton í dag.
Manchester United er í sjötta sæti deildarinnar með 44 stig, þremur minna en Tottenham í fimmta og fimm minna en Aston Villa í fjórða.
Leikurinn hófst með látum en eftir 37 sekúndur kom Höjlund United-liðinu yfir. Þá sendi Amari'i Bell, varnarmaður Luton, boltann á Höjlund sem slapp einn í gegn, fór framhjá Thomas Kaminski markverðir Luton og skoraði. 1:0.
Höjlund var svo aftur á ferðinni á sjöundu mínútu er hann kom United í 2:0. Þá skaut Alejandro Garnacho í bringuna á honum og þaðan stýrði Höjlund boltanum í netið á skemmtilegan hátt.
Carlton Morris minnkaði muninn fyrir Luton sjö mínútum síðar en upphafsmínútur leiksins voru rosalegar.
Þá fylgdi hann á eftir skoti Tahith Chong og stangaði boltann í netið.
Liðin skiptust á færum það sem eftir lifði leiks og var leikurinn mikil skemmtun. United-liðið fékk nokkur dauðafæri til að komast aftur tveimur mörkum yfir en fóru illa með færin.
United-liðið er þá búið að vinna fimm leiki í röð í öllum keppnum og fjóra í ensku deildinni. Næst fær United Fulham í heimsókn en Luton heimsækir Liverpool í miðri viku.