Brighton & Hove Albion nýtti sér það vel að Sheffield United lék manni færri frá 13. mínútu og vann 5:0-sigur í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla í dag.
Facundo Buonanotte kom Brighton yfir stuttu eftir brottrekstur Masons Holgates, á 20. mínútu, og Danny Welbeck tvöfaldaði forystuna fjórum mínútum síðar.
Í síðari hálfleik skoraði Jack Robinson sjálfsmark auk þess sem Simon Adingra skoraði tvívegis.
Mörkin fimm ásamt rauða spjaldi Holgates má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.