Gylfi Einarsson og Bjarni Þór Viðarsson voru gestir Tómasar Þórs Þórðarson í Vellinum á Símanum Sport á laugardaginn var.
Félagarnir ræddu tap Manchester United fyrir Fulham, 2:1, í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu.
„Antony, elsku kallinn. 90 milljónir punda, ekki mark, ekki stoðsending. Rasmus Höjlund ekki með en hann enn þá á varamannabekknum.
Inn kemur Omari Forson, fæddur hið herrans ár 2004,“ sagði Tómas.
„Er það ekki bara allt í lagi?“ skaut Gylfi inn í. „Jú, en hversu vond voru þessi kaup, þetta hlýtur að vera botninn í því,“ svaraði Tómas.
Umræðuna í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.