Phil Foden, leikmaður Manchester City, jafnaði metin gegn Manchester United í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu.
Kom hann einnig City yfir seinna í leiknum en jöfnunarmark Fodens var glæsilegt.
Fékk Foden boltann utan teigs og smellti honum í fjærhornið.
Staðan er 2:1 fyrir Manchester City þegar rúmar sjö mínútur eru eftir. Leikurinn er í beinni textalýsingu á mbl.is.
Markið má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.