Eldhaf við heimavöll enska liðsins

Vöruhúsið við völlinn í ljósum logum.
Vöruhúsið við völlinn í ljósum logum. Ljósmynd/@hogequeen

Mikill eldur hefur brotist út við St Mary's-völlinn í Southampton, þar sem enska B-deildarfélagið Southampton leikur heimaleiki sína.

Bygging við völlinn stendur í ljósum logum og þykkur reykmökkur grúfir yfir svæðinu. Heimaleikur Southampton við Preston, sem á að fara fram í kvöld, er nú í hættu.

Slökkvilið berst nú við eldinn, sem er í vöruhúsi. Þak hússins hefur hrunið og eru átta slökkviliðsbílar á svæðinu.

Uppfært: Leik Southampton og Preston hefur verið frestað. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka