Portúgalski knattspyrnumaðurinn Diogo Jota, sóknarmaður Liverpool, hefur enn einu sinni meiðst en hann verður frá næstu tvær vikurnar.
Þetta staðfesti Jürgen Klopp, stjóri liðsins, á blaðamannafundi rétt í þessu.
Jota er nýkominn til baka eftir löng meiðsli en hann hefur aðeins byrjað 14 leiki með Liverpool á tímabilinu.
Missir hann því af leikjum liðsins gegn Everton, West Ham og sennilega Tottenham þarnæstu helgi.