Everton og Liverpool mættust á Goodison Park í Liverpool borg í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Everton hafði betur 2:0.
Everton byrjaði betur og beittu skyndisóknum og löngum sendingum sem Liverpool átti erfitt með. Strax á 6. mínútur felldi Alisson Dominic Calvert-Lewin í vítateig Liverpool. Vítaspyrna var dæmd en Calvert-Lewin reyndist vera rangstæður og vítaspyrnan þar með dregin til baka. Abdoulaye Doucoure, Ben Godfrey og Calvert-Lewin áttu allir ágætis færi í kjölfarið en Everton voru töluvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum.
Undir lok hálfleiksins náðu Liverpool vopnum sínum.Darwin Nunez klúðraði dauðafæri á 35. mínútu einn gegn Jordan Pickford en fast skot hans fór beint á enska landsliðsmarkvörðinn.Pickford sá við Luis Diaz tíu mínútum síðarúr góðu færi en síðustu mínútur hálfleiksins voru eign Liverpool. Everton menn vörðust fimlega og komust með herkjum inn í hálfleikinn með verðskuldaða 1:0 forystu.
Liverpool hóf síðari hálfleikinn töluvert betur en þann fyrri en það var Calvert-Lewin sem bætti við marki fyrir Everton, þvert gegn gangi leiksins eftir hornspyrnu á 58. mínútu. 2:0 fyrir Everton.
Luis Diaz átti skot í stöng skömmu eftir mark Everton en þreytulegur sóknarleikur Liverpool olli heimamönnum litlum áhyggjum. Everton sigldi heim mikilvægum 2:0 sigri en Liverpool getur nánast kvatt titilbaráttuna úr þessu.