Jóhann og félagar í vondum málum (myndskeið)

Burnley er komið langleiðina niður í B-deildina eftir tap gegn Newcastle, 4:1, á heimaveli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Callum Wilson, Bruno Guimaraes, Sean Longstaff og Alexander Isak komu Newcastle í 4:0 áður en Dara O‘Shea lagaði stöðuna eftir stoðsendingu frá Jóhanni Berg Guðmundssyni.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert