Rekinn fimm mánuðum eftir nýjan samning

Liam Rosenior er atvinnulaus.
Liam Rosenior er atvinnulaus. Ljósmynd/Hull City

Enska B-deildarfélagið Hull City hefur rekið Liam Rosenior frá störfum eftir að liðinu mistókst að tryggja sér sæti í umspili um sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Rosenior skrifaði undir nýjan samning við Hull í desember á síðasta ári, en hinn 39 ára gamli Rosenior tók við Hull í nóvember árið 2022.

Hull endaði í sjöunda sæti B-deildarinnar á leiktíðinni og var þremur stigum frá Norwich og sæti í umspilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert