Dómarinn Jarred Gillet var með myndavél á hausnum á mánudaginn var er Crystal Palace burstaði Manchester United, 4:0, í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu.
Er það ný tækni sem enska úrvalsdeildin er að prófa en úr einni klippunni má sjá atvik þar sem að Gillet dæmdi ekki vítaspyrnu.
Þá lét Eberechi Eze sig falla inn í vítateig Manchester United en Gillet lét sér fátt um finnast, sem reyndist hárrétt.
Myndskeið af atvikinu má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.