Fóru illa með Aston Villa (myndskeið)

Crystal Palace, heitasta lið ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu, burstaði Aston Villa, 5:0, á Selhurst Park í lokaumferð deildarinnar í dag. 

Jean-Phillipe Mateta skoraði fyrstu tvö mörk Palace en Eberechi Eze bætti síðan við þremur. 

Palace hefur verið magnað upp á síðkastið en liðið vann til að mynda Manchester United 4:0 um daginn. 

Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert