Pep Guardiola hrósaði fyrrverandi starfsbróður sínum Jürgen Klopp í hástert á blaðamannafundi eftir að Manchester City varð Englandsmeistari í knattspyrnu karla fjórða árið í röð í dag.
Jürgen Klopp stýrði á sama tíma Liverpool í síðasta sinn en þeir tveir hafa verið fremstu stjórar deildarinnar undanfarin ár.
Spurður út í Klopp á blaðamannafundi eftir leik sagði Guardiola, hálfgrátandi, meðal annars:
„Ég mun sakna hans mjög svo. Jürgen hefur verið stór hluti af lífi mínu. Hann gerði mig að mun betri stjóra.
Ég vona að hann hafi fengið frábæran lokadag. Hann á það svo sannarlega skilið. Að vinna titla skiptir máli, en það sem Klopp skilur eftir er svo miklu meira en það.“