Burnley vill fá 3 milljarða íslenskra króna frá þýska stórveldinu Bayern München fyrir knattspyrnustjórann Vincent Kompany.
Kompany er efstur á blaði Bæjara, þrátt fyrir að hafa fallið með Burnley úr ensku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili. Samkvæmt þýskum sem enskum miðlum er munnlegt samkomulag á milli Bæjara og Kompany komið í höfn.
Bayern verður þó að glíma við Burnley þar sem Kompany er á samningi. SkySports greinir frá því að Burnley vilji fá allt að 17 milljónir punda fyrir Kompany eða þrjár milljarða íslenskra króna.
Bayern vill hins vegar ekki greiða það verð og er í viðræðum um að lækka það.