Emery framlengir um fimm ár

Unai Emery verður áfram í Birmingham næstu fimm árin
Unai Emery verður áfram í Birmingham næstu fimm árin AFP/ Ian Kington

Unai Emery hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Aston Villa en spænski knattspyrnustjórinn stýrði Villa í Meistaradeildarsæti á tímabilinu sem leið.

Aston Villa sat í sautjánda sæti deildarinnar þegar Emery tók við liðinu í október 2022 og náði sjöunda sæti þegar upp var staðið. Í ár gerði liðið enn betur og hafnaði í fjórða sæti.

„Ég er hæstánægður að taka þetta skref og með að bera ábyrgð á að leiða þetta félag. Andinn er góður hjá Aston Villa og við erum spennt að halda vegferðinni áfram“.

Nýr samningur Emery rennur út árið 2029 en Emery hefur áður stýrt Arsenal og Sevilla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert