Enska félagið vill 31 árs gamlan stjóra

Fabian Hürzeler stýrði St. Pauli upp í efstu deild Þýskalands …
Fabian Hürzeler stýrði St. Pauli upp í efstu deild Þýskalands á síðustu leiktíð. Ljósmynd/St. Pauli

Enska knattspyrnufélagið Brighton vill fá Fabian Hürzeler til að taka við karlaliði félagsins. 

Brighton leitar að nýjum stjóra eftir að Ítalinn Roberto De Zerbi sagði starfi sínu lausu undir lok síðasta tímabils. 

Hürzeler, sem er 31 árs gamall, kom St. Pauli upp í efstu deild Þýskalands í vor í fyrsta skiptir í 47 ár og virðist vera efstur á óskalista Brighton samkvæmt enskum miðlum. . 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert