Pep Guardiola lokar dyrunum

Pep Guardiola er knattspyrnustjóri Manchester City.
Pep Guardiola er knattspyrnustjóri Manchester City. AFP/Oli Scarff

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri karlaliðs Manchester City, verður ekki stjóri Barcelona á ný í framtíðinni. 

Guardiola stýrði Barcelona við magnaðan árangur frá 2008 til 2012 en hann vann meðal annars Meistaradeildina tvisvar. 

Í viðtali við COPE segir Guardiola þó ekki möguleiki að hann snúi aftur til Barcelona í framtíðinni. 

„Dyrnar eru lokaðar,“ sagði Guardiola er hann var spurður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert