Chelsea setur sig í samband

Michael Olise ásamt stjóranum Oliver Glasner.
Michael Olise ásamt stjóranum Oliver Glasner. AFP/Adrian Dennis

Chelsea hefur sett sig í samband við Crystal Palace vegna áhuga félagsins á franska knattspyrnumanninum Michael Olise. 

Olise lét ljós sitt skína á síðustu leiktíð með Crystal Palace, og sérstaklega undir lok tímabils. 

Nokkur félög eru á eftir leikmanninum, þar á meðal Manchester United, en hann er einnig ofarlega á lista Chelsea. 

Það er klásúla í samningi Michael Olise sem leyfir honum að ræða við önnur félög fyrir ákveðna upphæð.

Chelsea leitar nú svara í tengslum við þá upphæð samkvæmt félagaskiptasérfræðingnum Fabrizio Romano. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert