Hollendingurinn Matthijs de Ligt er ofarlega á óskalista Eriks ten Hag, knattspyrnustjóra Manchester United.
Ten Hag verður áfram með lið United og er farinn að plana sumarinnkaup.
Samlandi hans de Ligt er ofarlega á listanum. De Ligt er leikmaður Bayern München en félagið þyrfti að fá alvöru tilboð til að láta hann fara samkvæmt þýskum miðlum.