Vill fara til Manchester United

Matthijs de Ligt gæti orðið leikmaður Manchester United.
Matthijs de Ligt gæti orðið leikmaður Manchester United. AFP/Christof Stache

Hollenska knattspyrnumanninn Matthijs de Ligt langar að fara til enska stórveldisins Manchester United. 

De Ligt leikur hjá Bayern München en miðlar þarlendis greina frá því að hann vilji nýja áskorun. 

Hollendingurinn gerði garðinn frægan með Ajax árið 2019 en hann fór alla leið í undanúrslit Meistaradeildarinnar sem fyrirliði liðsins. 

Síðan þá hefur hann spilað með Juventus og Bayern en ekki náð að standa undir væntingum hjá félögunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert