Sóknarmaðurinn Iliman Ndiaye er orðinn leikmaður enska knattspyrnufélagsins Everton.
Ndiaye kemur til Everton frá franska stórfélaginu Marseille en hann á að baki 20 landsleiki fyrir Senegal.
Ndiaye náði sér ekki á strik hjá Marseille og skoraði aðeins fjögur mörk í 46 leikjum fyrir félagið.
Áður var hann í lykilhlutverki hjá Sheffiled United tímabilið 2022 til 2023 og skoraði 14 mörk í ensku B-deildinni þegar að liðið tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni.