Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson, leikmaður Blackburn Rovers í ensku B-deildinni í fótbolta er spenntur að byrja nýtt tímabil með liðinu en síðasta tímabil var erfitt fyrir hann vegna meiðsla.
„Ég veit hvað er að fara að gerast, ég var nýr í fyrra.
Þetta var erfitt á köflum, andlega og líkamlega, mikið af leikjum og ég meiddist snemma.
Frammistaða liðsins var upp og niður en ég lærði fullt og tek það með mér inn í næsta tímabil. Þegar þú gerir þetta í fyrsta skipti veistu ekki við hverju þú átt að búast en núna held ég að ég muni njóta þess betur.
Ég hef sýnt hvað ég get gert, núna þarf ég bara að sýna það í hverjum leik,“ sagði Arnór í viðtali á Samfélagsmiðlum Blackburn Rovers.
🗣️ "𝙄 𝙩𝙝𝙞𝙣𝙠 𝙄'𝙫𝙚 𝙨𝙝𝙤𝙬𝙣 𝙬𝙝𝙖𝙩 𝙄'𝙢 𝙘𝙖𝙥𝙖𝙗𝙡𝙚 𝙤𝙛 𝙙𝙤𝙞𝙣𝙜, 𝙞𝙩'𝙨 𝙖𝙗𝙤𝙪𝙩 𝙙𝙤𝙞𝙣𝙜 𝙞𝙩 𝙬𝙚𝙚𝙠-𝙞𝙣-𝙬𝙚𝙚𝙠-𝙤𝙪𝙩."
— Blackburn Rovers (@Rovers) July 3, 2024
🇮🇸 @arnorsigurdsson says he learnt a lot in his first season and is excited to get going again.#Rovers 🔵⚪️ pic.twitter.com/1S6Q84dvxC