Spænski markmaðurinn David Raya hefur skrifað undir samning hjá Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Raya var á láni hjá Arsenal frá Brentford á síðasta tímabili og spilaði 41 leik með liðinu og hélt 20 sinnum hreinu. Hann hélt 16 sinnum hreinu í úrvalsdeildinni og fékk að launum gullhanskann en enginn markmaður hélt jafn oft hreinu og hann.
Hann hefur spilað einn af fjórum leikjum Spánar á EM en þá hélt hann hreinu gegn Albaníu. Raya er í samkeppni við Unai Simon um aðalmarkmannsstöðuna hjá landsliðinu.