Evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, leyfir Manchester stórveldunum, City og United að keppa í Evrópukeppnum með liðum sem eru með sömu eigendur.
City Football Group á bæði Manchester City og Girona en bæði liðin fengu sæti í Meistaradeild Evrópu.
Manchester United og franska knattspyrnufélagið Nice eru bæði tengd Ineos og fengu bæði sæti í Evrópudeildinni.
Hingað til hafa lið ekki mátt taka þátt sem eru með sömu eigendur en liðin fengu undanþágu vegna þess að Girona og Nice hafa gert breytingar sem minnka vald fjárfesta
United má hinsvegar ekki kaupa varnamanninn Jean-Clair Todibo frá Nice.