Hollenska knattspyrnukonan Vivianne Miedema er gengin til liðs við Manchester City á frjálsri sölu frá Arsenal.
Miedema skrifar undir þriggja ára samning hjá Manchester City en hún yfirgaf Arsenal fyrr í sumar eftir sjö ár og fullt af mörkum hjá félaginu.
Þá varð Miedema Evrópumeistari með hollenska landsliðinu árið 2017.
Kvennalið Manchester City er í mikilli uppbygginu þessa stundina en liðið hafnaði í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.