John Cross, einn virtasti blaðamaður Englands, vill sjá Liverpool-manninn Trent Alexander-Arnold byrja næsta leik Englands gegn Sviss í átta liða úrslitum Evrópumótsins í fótbolta í Þýskalandi á morgun.
Leikurinn fer fram klukkan 16 á morgun en búist er við því að England geri stórar breytingar á sínu liði eftir erfiðleika á mótinu hingað til.
John Cross, sem skrifar fyrir The Mirror, vill sjá Alexander-Arnold koma inn í liðið.
„Settu hann bara inn á völlinn. Hann er besti sendingarmaður hópsins.
Gareth Southgate verður að átta sig á því, ef hann gerir það ekki mun hann sjá eftir því,“ sagði John Cross.