Sóknarmaðurinn Alisha Lehman er á förum frá enska úrvalsdeildarfélaginu Aston Villa til ítalska stórveldisins Juventus en kærastinn hennar, Douglas Luiz, fór sömu leið í júní.
Lehman er 25 ára gömul og kom til Villa frá West Ham árið 2021. Hún hefur síðan spilað 75 leiki með Villa og skorað í þeim 14 mörk. Hún skrifaði undir samning til 30. júní 2027
Hún spilaði aðeins 17 leiki á síðasta tímabili þar sem hún var að glíma við meiðsli og skoraði í þeim þrjú mörk.
Lehmann hefur spilað með í Svissneska landsliðinu síðan 2017 og hefur spilað 52 leiki og skorað í þeim níu mörk.
Hún verður liðsfélagi Söru Bjarkar Gunnarsdóttir í Juventus.
"A̶n̶n̶o̶u̶n̶c̶e̶ ̶L̶e̶h̶m̶a̶n̶n̶" ✋
— JuventusFC 🇬🇧🇺🇸 (@juventusfcen) July 6, 2024
𝐀𝐧𝐧𝐨𝐮𝐧𝐜𝐞𝐝: 𝐋𝐞𝐡𝐦𝐚𝐧𝐧 ✔️
Welcome to Juventus Women, Alisha! ⭐ 🇨🇭 🤍🖤
https://www.mbl.is/sport/enski/2024/06/30/lykilmadur_villa_til_juventus/