Fyrrverandi Liverpool-maðurinn þakklátur

Thiago hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna.
Thiago hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. AFP/Paul Ellis

Spænski knattspyrnumaðurinn Thiago Alcantara hefur staðfest þær fregnir að hann sé að leggja skóna á hilluna. 

Thiago gaf frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hann tilkynnti að hann væri að hætta. 

Þar sagðist hann vera þakklátur fyrir fótboltann og allt sem hann hefur gefið honum. 

Thiago lék síðast með Liverpool en hann hefur glímt við þrálát meiðsli undanfarin ár. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert