Belgíski landsliðsmaðurinn Amadou Onana er á leiðinni til Aston Villa frá Everton á fimm ára samning. Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá þessu á samfélagsmiðlum sínum.
Aston Villa mun greiða 50 milljónir punda fyrir Belgann en Everton sótti Onana frá Lille í Frakklandi á 30 milljónir punda fyrir tveimur árum.
Onana er miðjumaður og hefur leikið 72 leiki með Everton. Hann var í hóp Belga á EM sem komst í 16-liða úrslit í sumar.
Hér fyrir neðan má sjá færslu Romano á samfélagsmiðlinum X.
🚨🟣🔵 Amadou Onana to Aston Villa, here we go! Deal done for £50m fee and sell-on clause also included.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 13, 2024
Formal proposal accepted, five year deal for Onana at Villa valid until June 2029.
Medical being booked then deal set to be signed next week. pic.twitter.com/EMrpkYw7KC