Gengur til liðs við nýliðana

Liam Delap er nýjasti leikmaður Ipswich Town.
Liam Delap er nýjasti leikmaður Ipswich Town. Ljósmynd/Ipswich Town

Enski knattspyrnumaðurinn Liam Rory Delap er genginn til liðs við nýliðana Ipswich Town fyrir 15 milljónir punda.  

Delap kemur frá Manchester City en hann hefur mikið verið á láni í ensku B-deildinni og var á láni hjá Hull City á síðasta tímabili.  

Margir fótboltaáhugmenn muna eftir föður hans, Rory Delap, en hann spilaði lengi fyrir Stoke City og var þekktur fyrir sín löngu innköst.  



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert