Fyrrverandi Arsenal-maðurinn í B-deildina

Calum Chambers er nýjasti leikmaður Cardiff City.
Calum Chambers er nýjasti leikmaður Cardiff City. Ljósmynd/Cardiff City

Enski varnarmaðurinn Calum Chambers hefur skrifað undir þriggja ára samning hjá velska félaginu Cardiff City í ensku B-deild karla í knattspyrnu.

Chambers kemur frá Aston Villa á frjálsri sölu en hann kom aðeins við sögu í átta leikjum hjá félaginu í öllum keppnum.  

Margir þekkja Chambers fyrir tíma hans hjá Arsenal en hann lék 122 leiki með liðinu á fimm árum. Aaron Ramsey og Chambers muna sameinast á ný í Cardiff en þeir léku saman hjá Arsenal á sínum tíma.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert