Klopp í nýtt hlutverk hjá Liverpool

Jürgen Klopp er kominn í nýtt hlutverk hjá Liverpool.
Jürgen Klopp er kominn í nýtt hlutverk hjá Liverpool. AFP/Paul Ellis

Þjóðverjinn Jürgen Klopp er kominn í nýtt hlutverk hjá Liverpool en hann lét af störfum sem knattspyrnustjóri enska liðsins eftir síðasta tímabil og Hollendingurinn Arne Slot tók við.

Félagið greinir frá í yfirlýsingu á heimasíðu sinni að Klopp hafi verið útnefndur fyrsti heiðurssendiherra góðgerðafélags Liverpool-félagsins.

„Ég er mjög stoltur að halda samstarfi mínu við félagið áfram og að vera fyrsti maðurinn til að gegna þessu hlutverki. Ég hlakka til að sjá hvað við getum gert saman, nú þegar ég hef meiri frítíma,“ er haft eftir Klopp á heimasíðu félagsins.

Liverpool Echo greinir frá að félagið hafi lagt fram 65 milljónir punda í heilbrigðiskerfið í Liverpool-borg og þá hafa aðrar 16 milljónir punda runnið beint í hagkerfið í borginni.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert