United tilkynnir kaupin á Hollendingnum

Zirkzee skrifar undir fimm ára samning hjá Manchester United.
Zirkzee skrifar undir fimm ára samning hjá Manchester United. Ljósmynd/Manchester United

Enska knattspyrnufélagið Manchester United hefur tilkynnt kaupin á Hollendingnum Joshua Zirkzee sem skrifar undir fimm ára samning hjá félaginu.  

Zirkzee er 23 ára gamall framherji sem kemur frá Bologna á 42.5 milljónir evra. Hann átti gott tímabil hjá félaginu, skorandi 11 mörk í 32 byrjunarliðsleikjum.  

Hollendingurinn er uppalinn í akademíu Bayern München og vann sex bikara með félaginu. Hann er einnig landsliðsmaður Hollands og var í hópnum er liðið komst í undanúrslit á Evrópumótinu í sumar.  

Zirkzee er fyrstu kaup United í sumar en liðið hefur verið sterklega orðað við landa hans Matthijs de Ligt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert