Liverpool með augastað á Frakka

Mo Simakan, númer 2, fagnar marki fyrir RB Leipzig ásamt …
Mo Simakan, númer 2, fagnar marki fyrir RB Leipzig ásamt Svíanum Emil Forsberg. Ljósmynd/RB Leipzig

Enska knattspyrnufélagið Liverpool hefur augastað á Frakkanum Mo Simakan, leikmanni RB Leipzig. 

Sky í Þýskalandi greinir frá en Liverpool vill styrkja vörn sína fyrir komandi tímabil undir nýjum stjóra, Arne Slot. 

Simakan, sem er 24 ára gamall, er lykilmaður hjá RB Leipzig og lék 42 leiki fyrir félagið á síðustu leiktíð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert