Arsenal hafnar tilboði í leikmanninn

Emilie Smith-Rowe, til vinstri, í leik með Arsenal.
Emilie Smith-Rowe, til vinstri, í leik með Arsenal. AFP/Adrian Dennis

Arsenal hefur hafnað tilboði Fulham í enska knattspyrnumanninn Emile Smith-Rowe. 

Enskir miðlar greina frá en Fulham íhugar nú að bjóða aftur í sókndjarfa miðjumann Arsenal og er hann efstur á óskalista félagsins. 

Smith-Rowe, sem er 23 ára gamall, er uppalinn hjá Arsenal og var í stóru hlutverki tímabilið 2021 til 2022. 

Síðan þá hafa meiðsli haft áhrif á spilatíma hans hjá félaginu og var hann í litlu hlutverki á síðustu leiktíð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert