Kýldi andstæðing fyrir kynþáttaníð

Hee-Chan Hwang varð fyrir kynþáttaníði.
Hee-Chan Hwang varð fyrir kynþáttaníði. AFP/Glyn Kirk

Portúgalinn Daniel Podence, leikmaður Wolves, kýldi andstæðing sinn í Como fyrir að beita liðsfélaga sinn Hwang Hee-chan kynþáttaníði í æfingaleik liðanna í Marbella í gær. 

Wolves vann leikinn, 1:0, en Matt Doherty skoraði sigurmark liðsins. 

Varnarmaður Como á að hafa beitt Hwang, sem er frá Suður-Kóreu, kynþáttaníði á 68. mínútu leiksins. Liðsfélagi Hwang reiddist við það og kýldi varnarmanninn. 

Gary O'Neil, knattspyrnustjóri Wolves, sagði eftir leik að hann hefði spurt Hwang hvort hann vildi að leikurinn yrði stöðvaður en Suður-Kóreumaðurinn vildi halda áfram. 

Daniel Podence.
Daniel Podence. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert