Á leið til Manchester United fyrir 9 milljarða

Leny Yoro, annar frá hægri, í leik með Lille gegn …
Leny Yoro, annar frá hægri, í leik með Lille gegn Aston Villa í átta liða úrslitum Sambandsdeildarinnar í vor. AFP/Sameer Al-Doumy

Franski knattspyrnumaðurinn Leny Yoro er á leiðinni til Manchester United frá franska félaginu Lille. 

Yoro, sem er 18 ára gamall, mun kosta United 62 milljónir evra eða yfir níu milljarða íslenskra króna. 

David Orstein hjá The Athletic greinir frá en samkvæmt honum er Yoro á leiðinni í læknisskoðun hjá United. 

Yoro er einn mest spennandi varnarmaður heims en hann var í lykilhlutverki hjá Lille aðeins 18 ára gamall á síðustu leiktíð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert