Heitinga verður aðstoðarþjálfari Liverpool

John Heitinga verður aðstoðarþjálfari Arne Slot.
John Heitinga verður aðstoðarþjálfari Arne Slot. AFP/Roy Lazet

Hollendingurinn John Heitinga verður aðstoðarþjálfari Arne Slot hjá karlaliði enska knattspyrnufélagsins Liverpool. 

Heitinga, sem er 40 ára gamall, hefur reynt við sig í þjálfun undanfarin ár en hann stýrði hollenska stórliðinu Ajax frá janúar til júní á síðasta ári. 

Sem leikmaður spilaði Heitinga 87 landsleiki fyrir Holland. Þá lék hann með liðum eins og Ajax, Atlético Madrid, Fulham, Hertha Berlin og síðast en ekki síst Everton, nágrönnum Liverpool. 

Hann lagði skóna á hilluna árið 2016 og hefur verið umvafinn þjálfun síðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert