Óvænt á förum úr ensku deildinni?

Moussa Diaby.
Moussa Diaby. AFP/Adrian Dennis

Franski knattspyrnumaðurinn Moussa Diaby nálgast Al-Ittihad frá Sádi-Arabíu. 

Diaby er leikmaður Aston Villa en hann kom til liðsins frá Bayer Leverkusen fyrir síðasta tímabil. Miklar væntingar voru bundnar við Diaby en hann var inn og út úr liðinu hjá Villa. 

Nú greina enskir miðlar frá því að Diaby nálgist Al-Ittihad en leikmenn eins og Karim Benzema, N'Golo Kanté og Fabinho leika hjá félaginu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert