Fyrirliðinn í ensku úrvalsdeildina

Nikola Milenkovic er orðinn leikmaður Nottingham Forest.
Nikola Milenkovic er orðinn leikmaður Nottingham Forest. Ljósmynd/Nottingham Forest

Enska knattspyrnufélagið Nottingham Forest hefur gengið frá kaupum á serbneska miðverðinum Nikola Milenkovic en hann kemur til félagsins frá Fiorentina á Ítalíu, hvar hann var fyrirliði.

Forest greiðir tólf milljónir punda fyrir Milenkovic, sem gerir fimm ára samning við enska félagið. Hann hefur leikið 57 landsleiki fyrir Serbíu og lék hverja einustu mínútu með landsliði sínu á EM í Þýskalandi.

Í 264 leikjum með Fiorentina skoraði hann 17 mörk og lagði upp fimm til viðbótar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert