United framlengir við markavélina

Nikita Parris.
Nikita Parris. Ljósmynd/Manchester United

Nikita Parris, markahæsti leikmaður Manchester United í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu, framlendi samning sinn við liðið.

Parris er 30 ára framherji og skoraði 16 mörk og gaf tvær stoðsendingar í 30 leikjum í öllum keppnum á síðasta tímabili.

Hún framlengdi samningin þar til um sumarið árið 2025 en félög í bandarísku MLS-deildinni höfðu mikinn áhuga á henni.

Hún vann Meistaradeild Evrópu með franska stóveldinu Lyon tímabilið 2019-2020 og var partur af enska landsliðinu þegar það vann EM 2022. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert