Snýr aftur í uppeldisfélagið

Jaden Philogene er kominn til Aston Villa á ný.
Jaden Philogene er kominn til Aston Villa á ný. Ljósmynd/Aston Villa

Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa hefur gengið frá kaupum á Jaden Philogene frá Hull City í B-deildinni. Philogene skrifaði undir fimm ára samning við Villa í dag.

Kantmaðurinn fór til Hull frá uppeldisfélaginu Aston Villa fyrir ári síðan og er nú aftur kominn heim. Ipswich og Everton höfðu einnig áhuga á leikmanninum, sem kaus Villa.

Villa greiðir um 20 milljónir punda fyrir Philogene, sem er 22 ára. Hann lék þrjá leiki með Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni áður en hann skipti yfir til Hull.

Hann skoraði 12 mörk og lagði upp sex til viðbótar í 32 leikjum með Hull á síðustu leiktíð. Hann hefur einnig leikið á láni hjá Stoke og Cardiff.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert