Vill endilega fá Arsenal-manninn

Emile Smith-Rowe gæti verið á leiðinni til Crystal Palace.
Emile Smith-Rowe gæti verið á leiðinni til Crystal Palace. AFP

Oliver Glasner, knattspyrnustjóri karlaliðs Crystal Palace, er sagður vera mjög spenntur fyrir Emile Smith Rowe leikmanni Arsenal. 

Enskir miðlar greina frá en samkvæmt þeim mun Crystal Palace bjóða í enska leikmanninn á næstunni. 

Arsenal hafnaði tilboði Fulham í miðjumanninn fyrr í mánuðinum en hann er eftirsóttur af mörgum liðum í ensku deildinni. 

Smith Rowe er uppalinn hjá Arsenal og var lykilmaður í liðinu tímabilið 2021 til 2022 en hann hefur verið mestmegnis meiddur síðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert