Arsenal nær samkomulagi

Riccardo Calafiori átti gott Evrópumót með Ítalíu.
Riccardo Calafiori átti gott Evrópumót með Ítalíu. AFP/Ina Fassbender

Ítalski knattspyrnumaðurinn Riccardo Calafiori er á leiðinni til Arsenal frá Bologna í heimalandinu. 

Enskir miðlar greina frá en félagaskiptin hafa tekið sinn tíma en fyrst var greint frá áhuga Arsenal í síðasta mánuði. 

Arsenal mun borga 33 milljónir punda fyrir leikmanninn og félögin eru ræða hvernig greiðslan eigi að fara fram þar sem Basel, fyrrverandi félag Calafiori, fær 50% af upphæðinni sem Arsenal greiðir fyrir leikmanninn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert