Rashford missir bílprófið

Marcus Rashford má ekki keyra næstu sex mánuðina.
Marcus Rashford má ekki keyra næstu sex mánuðina. AFP/Oli Scarff

Knattspyrnumaðurinn Marcus Rashford er bílprófslaus næsta hálfa árið en hann missti það vegna hraðaksturs. 

Rashford, sem er sóknarmaður Manchester United, var tekinn á tæplega 170 kílómetra hraða á klukkustund í desember á síðasta ári. 

Hann fær 300 þúsund krónur í sekt fyrir brotið og má ekki keyra næstu sex mánuðina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert