Sjö leikmenn mega fara frá Manchester United

Sir Jim Ratcliffe.
Sir Jim Ratcliffe. AFP/Valery Hache

Sir Jim Ratcliffe, minnihlutaeigandi enska knattspyrnufélagsins Manchester United, er tilbúinn að láta sjö leikmenn karlaliðsins fara. 

Daily Mirror greinir frá en samkvæmt miðlinum langar Ratcliffe að hreinsa til hjá félaginu. 

Harry Maguire, Victor Lindelöf, Aaron Wan-Bikssaka, Scott McTominay, Christian Eriksen, Casemiro og Antony er öllum frjálst að fara frá félaginu. 

United hefur nú þegar verið duglegt í kaupum á leikmönnum en Leny Yoro og Joshua Zirkzee eru báðir komnir til félagsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert