Svíinn á förum frá Tottenham?

Dejan Kulusevski.
Dejan Kulusevski. AFP/Ben Stansall

Sænski knattspyrnumaðurinn Dejan Kulusevski gæti verið á förum frá Tottenham en Napolí er sagt hafa áhuga á leikmanninum. 

Enskir miðlar greina frá en fyrrverandi stjóri hans Antonio Conte vill ólmur fá Kulusevski til Napolí, sem hann tók við fyrr í sumar. 

Kulusevski kom til Tottenham frá Juventus í janúar 2022 og var frábær undir stjórn Conte.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert